20.12.2007 | 14:55
Hátt uppi
Hæ, Addi hér. Við fórum um daginn upp í næst hæsta húsið hér í Shanghai sem kallast Jin Mao turninn. Hæsta húsið í Shanghai og í heiminum er hinum megin við götuna og er í byggingu, verður tilbúið í mars á næsta ári. Hef séð það á Discovery í þáttum yfir verkfræði og þessháttar. Meiriháttar reynsla fyrir sveitamanninn frá Eyjum þar sem húsin þykja mjög há ef þau eru 4 hæðir. Fórum auðvitað á barinn sem er á 87. hæð og fengum okkur smárétti. Urðu að skipta 2var um lyftu á leiðinni upp því ef það væri aðeins 1 lyfta alla leið þá yrðu vírarnir svo langir og því of þungir fyrir mótorana. Á 46. hæð sem við skiptum um lyftu er hótel á nokkrum tugum hæða upp. Þar fyrir ofan er svo útsýnisbarinn og veitingahús. Fengum dúndrandi hellu fyrir eyrun á leiðinni upp í lyftunni vegna hæðarbreytingarinnar. Erum á leiðinni heim, mun sakna Shanghai. Læt fylgja með nokkrar myndir af turninum og húsinu við hliðina.



Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.12.2007 | 13:41
Ísland á morgun, Vestmannaeyjar á hinn.
Þá er Kínaævintýrinu alveg að ljúka. Við erum búin að pakka mest öllu dótinu. Ótrúlegt hvað það safnast að manni dótið, við sendum allar bækurnar með pósti, svona aðeins til að létta á þessu. Síðustu viku höfum við verið að kaupa jólagjafir og eru þær allar innpakkaðar, komnar ofan í tösku. Við erum búin að hafa það svakalega gott, það er mjög jólalegt hérna. Mikið skreytt og jólalögin hljóma allsstaðar. Annars er allt svo uppljómað að það þarf nú ekki mikið af jólaskrauti. Samt halda Kínverjar ekkert upp á jólin en eru samt hrifnir af skrautinu og tónlistinni. En á morgun tökum er það flug til London og þaðan beint heim til Íslands og síðan næsta dag heim til Eyja, beint heim í jólin og það verður notalegt.








Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2007 | 10:28
Misjöfn eru kjörin
Addi hér. Þó Helga sé byrjuð að blogga aftur þá ætla ég allavega að bæta allavega einu inn þar sem ég sagðist í síðasta bloggi ætla skrifa meira. Misskiptingin milli ríkra og fátækra hér er ótrúlega mikil. Meginþorri fólks hefur um 10.000 kr. í mánaðarlaun og er afar mikið af betlurum í sumum hverfunum hér. En hinsvegar sér maður glæsilegar verslanir, bíla, hús og vörur sem kosta mun meira en heima. T.d. er verið að auglýsa íbúðir í Pudong hverfinu sem er við miðbæinn og er leiguverðið frá kr. 250.000 á mánuði og sér maður mun hærra. Fór í búð um daginn, Carrefour sem er með innfluttar vörur. Okkur var farið að langa í vestrænt snakk og þ.h. Verðlagið þar var eins og á Íslandi og var ekkert mál að eyða 1 kínverskum mánaðarlaunum á ½ tíma. Verslunin er í Gubei hverfinu en þar býr mikið af Japönum og útlendingum. Allir í afgirtum hverfum með gaddavír og rafmagni ofaná steinveggjunum, og standa hús þar sem eru eftirmyndir af Grískum hofum og þaðan af flottara. Við svona aðstæður er von að reynt sé að ná pening af okkur ríku útlendingunum. Notaðar eru ýmsar aðferðir við það, t.d. er sett upp yfirleitt 3falt verð á allar vörur í ýmsum mörkuðum og á maður síðan að prútta. Mér gengur það yfirleitt vel enda hef ég gaman af því og lít á það sem leik og hluta af kaupunum. Önnur aðferð sem Helga lenti í er að skóburstarar klína áburði á skóna þegar maður gengur fram hjá þeim og bjóðast síðan til að þurrka hann af og pússa skóna og setja síðan upp himinháar upphæðir fyrir, þá er bara að sýna hörku og láta ekki spila með sig. Algeng aðferð sem einnig og búið að vara við í fjölmiðlum hérna eru skólastúlkutrikkið. Felst það í því að 2 stelpur á menntaskólaaldri gefa sig á tal við ferðamenn. Saklausa útgáfan af því er að þær þykjast vera listnemar frá borg í nágrenni Shanghæ og eru að halda sýningu á verkum sínum og vilja endilega sýna verkin og selja ódýrt svona fyrir ferðakostnaði og þessháttar. En þær eru bara ráðnar af búðareigendum til að draga fólk inn í búðirnar sem selja myndir og fá það til að kaupa. Grófustu dæmin eru þegar þær þykjast vera enskunemendur og bjóðast til að fylgja fólki ókeypis um og sýna því borgina svona til að æfa sig í enskunni. Það endar yfirleitt með því að fólk er tælt eitthvað sem það er síðan rænt eða þá það er platað inn á tehús eða veitingastaði og svo er óspart tekið út á ferðamanninn og situr hann oft uppi með reikning upp á tugi eða hundruði þúsunda. En 99% fólks hérna er yndislegt og er bara gaman að umgangast og eiga viðskipti við. Læt fylgja með myndir frá Shanghai Museum sem við kíktum á í dag.






Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.12.2007 | 18:20
Úthýsingunni lokið-myndir frá síðustu viku
Addi kom með blað um Ísland fyrir mig handa kínversku samnemendum mínum. Það er búið að vera frábært að sýna þeim, þeir eru flestir búnir að hitta forsetann okkar og hafa mikinn áhuga á landi og þjóð. Þeim fannst bara fyndið þegar ég sýndi þeim á kortinu hvar ég byggi. Finnst skrýtið að velja sér svona lítinn stað til búsetu. Eins fannst þeim fyndið að við skyldum borða lunda, héldu að þetta væru ekki raunverulegir fuglar með þetta nef. Flestir kínversku samnemdur mínir stefna á áframhaldandi nám í Noregi eða Svíþjóð og geta þeir fengið til þess styrki frá þarlendum stjórnvöldum. Til dæmis fá þeir tveir bestu sem voru í náminu með mér styrki til að dvelja eina önn við Háskólann í Bergen. Ég sé alveg á þeim að Ísland heillar og væri gaman að með nýlegu samstarfi við Fudan yrðu til styrkir handa kínverskum nemendum. Sumir eiga náttúrlega mjög efnaða foreldra að en flestir eru mjög fátækir og hafa komist í Fudan vegna þess að þeir skara sérstaklega fram úr í námi. Þeir hafa enga möguleika á að fara til annarra landa í nám nema þeir fá til þess styrk.



Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.12.2007 | 21:35
Veitingahúsin sérstök
Bloggar | Breytt 16.12.2007 kl. 10:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2007 | 17:32
Lífið og tilveran
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.12.2007 | 13:18
Ísland besta landið
Í gönguferðinni í gær hittum við mann þegar við vorum að taka myndir af einu byggingarsvæðinu hérna í miðbænum. Gömlu húsin farin og verið að gera klárt að byggja nýtt. Maðurinn hafði kennt ensku við framhaldsskóla hérna í borginni og var að halda enskunni sinni við og spjallaði mikið. Hann sagði okkur hvað hann væri ánægður með að verið væri að rífa þessi gömlu hús og byggja ný í staðinn. Kemur kannski ekki á óvart því við erum búin að ganga í gegnum borgarhluta þar sem einungis er eitt almenningssalerni fyrir heila götu og vaskarnir sem eru ekki margir eru úti á götu. Annars er athyglisvert að fólk virðist vera mjög ánægt með framkvæmdir stjórnvalda og efast ekki um þær. Ef stjórnvöld ákveða að gera eitthvað þá er það það besta sem hægt er að gera, það er ekki rökrætt um aðgerðirnar. Maðurinn vildi náttúrlega vita hvaðan við værum og vissi alveg að á Íslandi væri best að búa í öllum heiminum. Skiptir greinilega miklu fyrir kynninguna á Íslandi að vera best.
Gönguferð gærdagsins endaði þar sem flokkurinn var stofnaður, en í dag er þar fjöldi veitingastaða af bestu sort. Addi fékk að velja og valdi hann japanskan stað sem var bara frábær. Reyndar bara prjónar en Adda fannst það lítið mál að borða nautasteikina sem hann fékk sér með prjónunum. Það verður að segjast að Addi er að velja svolítið öðruvísi veitingastaði en ég hef gert á meðan að dvöl minni hefur staðið hérna, hann hefur næmt auga fyrir þessu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2007 | 12:52
Nóg við að vera
Í gær fórum við hjónin í gönguferð og gengum svokallaða antikleið sem líst er í Lonley Planet. Áður fórum við og fengum okkur að borða og fórum á stað sem ég hef oft farið á í hádeginu og býður upp á mjög sérstaka rétti. Mér fannst ekki hægt að Addi búinn að vera hérna í heila þrjá daga og hafði alveg komist upp með það að borða eingöngu með hnífapörum og skilja matseðlanna. Þetta er ekta staður, matseðillinn eingöngu á kínversku og þú átt að merkja við það sem þú villt. Addi hélt kannski að ég vissi eitthvað hvað stæði þarna en því fór fjarri, þegar við höfum farið þarna þá merkjum við bara við nógu mikið og eitthvað hlýtur að vera ætt. Við fengum eina fjórtán rétti og þeir brögðuðust misjafnlega en Addi borðaði með prjónum og tókst honum vel til. Fyrir öll herlegheitin þurftum við að borga 650 krónur en auðvitað fengum við okkur bjór með. Þá var komið að gönguferðinni og lá leiðin niður í gamla borgarhlutann. Það er margt að sjá en hvimleitt hvað það eru margir sölumenn sem vilja endilega selja manni ekta lolex úr (segja ekki R) eða Gucci, Prada. Endalaust lukka lukka chípa chípa (sem þýðir komdu og sjá það er ódýrt). Við lögðum leið okkar í mörg hof og það var frábært að sjá þegar þeir eru að fórna gervipeningum og heilum pappahúsum. Auðvitað vöktum við athygli og einum stað þar sem við stóðum þá kom að fólk og var að fara að taka myndir. Addi að sjálfsögðu kurteis, færði sig úr myndinni, en ég vissi alveg að myndefnið værum við og leyfði fólkinu að taka myndir af sér með mér en forðaði mér fljótlega því auðvitað vildu allir fá mynd af sér með mér.



Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2007 | 12:50
Markaður
Það eru allavega markaðir hérna í Shanghai. í gær fórum við á einn svolítið sérstakan, gæludýra, skordýra og blómamarkað. Þar var verið að selja hvolpa og kettlinga. Páfagauka og kanínur. En einnig engisprettur og lirfur. Það var gaman að sjá þetta. Mikið af fólki og skordýrin í boxum, hænur spígsporandi um gólfin. En við keyptum ekki jólagjafirnar þarna þó svo að það hafi einn kettlingurinn gefið sterklega í skyn að hann vildi fara með okkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2007 | 14:14
Addi kominn til Shanghai
Addi komst til Shanghai á tilsettum tíma, þó svo að brjálað veður hafði verið í Eyjum og Herjólfur hálf bilaður þá náði hann til Reykjavíkur. Stressið hélt áfram í London því vélinni seinkaði frá Íslandi og var alveg í það tæpasta að Addi næði vélinni til Shanghai en hann náði sem betur fer. Eftir að ég hafði náð í hann út á flugvöll, fórum við niður í bæ og ákvað ég að fara með hann á svona nokkuð öruggan stað, sem merkir nokkuð vestrænan stað. Það var komið fullt af jólaskrauti og var lítið sem minnti á Kína þó svo að við sætum beint á móti húsinu þar sem fyrsti flokksfundur Kommúnistaflokksins var haldinn. Addi varð hálf hissa, allir töluðu ensku og hnífapör. Við fengum okkur því göngu eftir matinn og fórum aðeins inn á franska svæðið á sunnudögum er það markaður. Þar er hægt að kaupa alls kyns rusl og drasl og þar á meðal lifandi snáka. Svolítið Kínverskt! En í dag þó fórum við á fatamarkaðinn eða réttara sagt efnamarkaðinn og Adda langaði ekki í neitt, ég fann reyndar sjálf ekki margt þegar ég fór fyrst, en það breyttist. Við enduðum daginn á að fara niður að Bund og að People square. Svakalega mikið af fólki og fólkið horfir svakalega mikið á mann. Addi er ekki enn farin að borða með prjónum og líst ekkert á þá staði sem ég hef borðað á. Við höfum það náttúrlega svakalega gott og erum á þessu líka flotta hóteli. Mikill munur frá Joy Inn þó svo að það hafi verið notalegt að vera þar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Helga Stína bloggar frá Kína
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar